Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Síđustu dagarnir í Toulon

19. desember 2007 klukkan 01:08
Hér í prinsessuhallargarðinum er undirbúningur fyrir heimför í hámarki og tilhlökkunin langt umfram allt sem eðlilegt getur talist. Er viss um að ekki einu sinni Svala Björgvins hafi nokkurn tímann hlakkað jafn mikið til og þá hlýtur nú að vera mikið sagt.

Síðustu dagar hafa að mestu farið í að kveðja það fólk sem við höfum kynnst hér og það er alltaf jafn skemmtilega leiðinlegt. Erum búnar að gefa velvöldum góðar gjafir eins og Nissa súkkulaði og Djúpur frá Djúpavogi (sem við hefðu þó helst viljað éta sjálfar en sælla er víst að gefa en þiggja).  Inn á mili erum við að pakka restinni af dótinu ofan í tösku,þrífa og gera allt klárt sem þarf að klára. Erum í smá vandræðum þar sem við eigum svo mikið af mat eftir þannig að nú er maraþon át þessa síðustu daga og reynt að klára allt ætilegt í húsinu,engin miskun . Væri að sjálfsögðu skárra ef þetta væri drykkjarmaraþon en þar sem öll drykkjarföng í prinsessuhallargarðinum klárast jafnóðum er víst ekkert um það að ræðaHlæjandi

Bjössi bættist í meðlim prinessuhallargarðarins um síðustu helgi og urðu að sjálfsögðu miklir fagnaðarfundir. Karlmaður var svo sannarlega vel þeginn í húsið og hann strax settur í hin ýmsu störf s.s. að laga klósettsetuna, redda nýrri ljósaperu,bakka almennilega í bílastæði í fokk.... bílastæðahúsunum, elda gómsætan mat og fleira svona sem æskilegt er að alvöru karlmenn geri. Svo segir hann okkur líka svo margar skemmtilegar sögur og minnir okkur á það að við getum víst ekki lifað án karlmanna, þótt að við værum búnar að telja okkur trú um það síðustu mánuði.

p.s. þetta er sko ekki lokabloggið, það kemur inn á morgun þannig að þangað til....

Batman

05. desember 2007 klukkan 17:22
Við komumst heilar á húfi heim úr fjallgöngunni sem var reyndar eitthvað "aðeins" erfiðari heldur en við bjuggumst við. Lögðum af stað upp fjallið í kringum 10 um morguninn og vorum komin aftur niður um fjögurleytið, að sjálfsögðu dauðþreyttar en þvílíkt sáttar með skemmtilegan dag. Sáum fullt af frönskum furðuhlutum t.d. litla leðurblöku, sem var sérstaklega flott og tókum fullt af flottum myndum sem við erum að reyna að henda hérna inn.

Í gær fórum við svo í smá skoðunarferð með aðaltöffaranum Jan Claude og litháensku stelpunum upp á einn besta útsýnisstaðinn yfir Toulon og það var alveg magnað að sjá svona vel yfir alla borgina. Húsin eru mjög dreifð og þess vegna lítur borgin út fyrir að vera miklu stærri. Það er í rauninni ekkert sérstaklega merkilegt við Toulon nema það hversu mikilvæg höfnin er fyrir franska sjóherinn enda er þeir með eitt sitt stærsta aðsetur hér.

Tókum video í hellinum og hérna er eitt af skríkjandi stelpum og John the bat:
http://youtube.com/watch?v=BqRM-pHhJw0

Til að koma okkur aðeins betur í jólafílinginn smelltum við í nokkar piparkökur í fyrrakvöld með stórskemmtilegri útkomu og miklum hlátrasköllum. Bjuggum m.a. til jólastjörnu, jólatré,typpi, brjóst, Nissan Note, prinsessuhallargarð og fleira svona jólalegt. Best að þið sjáið bara myndirnar, þær eru komnar á link hérna vinstra megin á síðunni Hlæjandi

Hér eru svo líka video frá bakstrinum, hehehe:
Nýtískulegt kökukefli: http://youtube.com/watch?v=7AbSwUsGt4A
Þrætubínur, haha: http://youtube.com/watch?v=089mHg0TwJY
Afraksturinn: http://youtube.com/watch?v=dbVlXuuQDsk

En nú á risastór verkefni í strategy hug okkar allann, eða svona næstum því. Eigum að skila því á föstudaginn í næstu viku og þá verður sko þungu fargi af okkur létt.

En þangað til næst :*

Kítl......

01. desember 2007 klukkan 01:17

Talandi um námið já þá erum við nú ekkert sérstaklega ánægðar með það hér í Toulon fram að þessu en það breyttist stórlega í þessarri viku. Þá erum við búin að vera í kúrs sem heitir negotiation með frábærum kennara, honum John May. Hann er búin að kenna okkur m.a.öll helstu dirty tricks í samningaviðræðum og hvernig á að nota kvenlegan kynþokka til að fá þínu framgengt. (nei djók hann kenndi okkur það ekkert, við kunnum það alveg fyrir)Glottandi Þannig að nú erum við enn harðari í horn að taka. 

Annars er spenningurinn fyrir heimkomunni farin að kitla okkur aðeins í litlu tána, sérstaklega þegar við erum að senda heim tugi kílóa af gjöfum og öðru dóti sem við höfum keypt hér, til þess að sleppa við að borga yfirvigt. Ætli við verðum ekki að senda okkur sjálfar heim til þess að forðast yfirvigt þar sem við höfum sennilega étið yfir okkur af frönsku súkkulaði, ostum og öðru gómgætiHlæjandi

Helgin er plönuð í túristaleiki og á sunnudeginum ætlum við að fara með hinum skiptinemunum í fjallgöngu hér nálægt Toulon.

Og fyrst við erum nú farnar að tala um skólann þá þurfum við líka að klára eitt stórt verkefni í Strategy kúrsnum og sýna þessum frökkum hvað við getum. Við erum nefnilega farnar að halda það að frönsku strákarnir haldi að það eina sem við getum gert sé að brosa og vera sætar, þeir höfðu allavega ekki mjög mikla trú á íslensku stelpunum til að byrja með og vildu alltaf ákveða allt. Við sættum okkur nú að sjálfsögðu ekki við það og vorum fljótar að reyna hvað við gátum til að taka stjórnina. Hérna taka þeir stelpur ekkert rosalega alvarlega þannig að við reynum hvað við getum til að sýna þeim hversu miklir víkingar við erum, með misjöfnum árangri þó heheUllandi

Já sćććll - Viđ horfum sko líka á Nćturvaktina ;)

27. nóvember 2007 klukkan 21:24

Í gærmorgun rifum við okkur upp með miklum erfiðleikum fyrir 8 til að mæta í skólann kl.9 en þá áttum við að byrja í nýjum kúrs - Negotiation. Smurðum okkur meira að segja nesti á 0,1 því skóladagurinn átti að vera ansi langur. Þegar við komum upp í skóla, aðeins seinar, hlaupum við að kíkja á töflu sem sýnir í hvaða stofu við eigum að vera. Á töflunni var kúrsinn ekki merktur inn fyrr en á miðvikudaginn - GREAT! Við ætluðum nú ekki að trúa því þar sem við höfðum fengið nokkra pósta um það að kúrsinn ætti að byrja 26.nóv! Fórum því í stofuna og viti menn, þar var bara ekkert verið að kenna Negotiation!!

Laugardagskvöldið var nú heldur betur skrautlegt og skemmtilegt...

-- Stop staring at my boobs - strákunum er sko sagt til syndanna hér!
-- Sumir helltu aðeins of miklu kampavíni á kjólinn hjá einni, hehe!
-- Þegar við vorum komnar útí bíl á leiðinni heim: OK girls, let's go dancing!!
-- Ein vaknaði með veiðihár í andlitinu, haha!
-- Sumir fengu sér svo 3 samlokur þegar heim var komið.

Já þetta Galakvöld var nú alveg helvíti skemmtilegt og gátum við tjúttað af okkur rassinn eins og takmarkið var! Hlæjandi

Annars eru aðeins 3 helgar eftir hjá okkur í Toulon þannig að við ætlum að nýta þær út í ystu æsar! Erum að fara á laugardaginn í Aix En Provance sem er hérna rétt hjá Toulon og svo á sunnudaginn erum við að fara í 5 klst gönguferð ásamt fleiri Erasmus stúdentum. Helgina þar á eftir kemur ástmaðurinn og er manni nú farið að hlakka ansi mikið til að fá hann - gott að fá karlmann í teymið! En það sem okkur langar að gera áður en við komum heim er að sreppa til Monaco, yfir til Genova á Ítalíu, Avignon sem er fjallaþorp hér í héraðinu, fara aftur til Nice og fara uppá fjallið hér í Toulon! Þannig að dagskráin er þétt setin og áður en við vitum af erum við komnar heim í kuldann...

Knúsar frá okkur :* * * *

Galakvöld

24. nóvember 2007 klukkan 15:13
Í kvöld er galakvöld í skólanum og við ætlum að sjálfsögðu ekki að láta okkur vanta. Hér í prinsessuhallargarðinum er undirbúningur í hámarki og búið að tjalda öllu til s.s. hárlit, naglalakki, andlitssnyrtingu, brúnkukremi og fleira og fleira enda er ætlunin að sýna Frökkunum where all the beutiful women come from hehe

Jólaandinn er að hellast yfir okkur og við erum aðeins farnar að hlusta á jólalög og borða mandarínur í kílóavís en samt ríkir ekki mikil jólastemming hér í Toulon.  Það er t.d. ekki búið að kveikja á einu einasta jólaljósi á götunum og fólk er ekkert farið að skreyta. Greinilega ekki jafn skreytingaóðir og við Íslendingar.

Svo er eitt sem er frekar sérstakt hérna. Frakkar eru yfirhöfuð einstaklega rólegir og þolinmóðir og t.d. þegar þeir eru í matvörubúðum að versla inn fyrir vikuna þarftu að bíða í amk 10 mín í röðinni að kassanum til þess að borga. Og þegar er komið að þeim að borga KLÁRA þeir að ráða í pokana og draga svo upp kortið, á meðan bíða allir hinir rólegir í röðinni (nema við að sjálfsögðu). Kannski ættum við frekar að læra eitthvað af þessum rólegheitum humm Hlæjandi

Við viljum svo í lokin senda Bifrastarpabba þúsund kossa í tilefni dagsins :*

When in Rome......

22. nóvember 2007 klukkan 20:08
Þá erum við dömur komnar heim í prinsessuhallargarðinn eftir um 6 daga dvöl í heimsborginni Róm. Við fórum auðvitað eins og alvöru prinsessum sæmir, með einkaþotunni okkar frá flugvellinum í Nice en þangað vorum við keyrðar af einkabílstjóra á eðallimmunni Nissan Note. Svalur Þegar til Rómar var komið tók Grímsi frændi (Sigrúnar) á móti okkur með opna arma og skutlaði okkur í bæinn með stuttu stoppi heima við til að koma okkur fyrir...  Á leiðinni fengum við sögu Rómar beint í æð enda Grímur alkunnur eftir tæplega 11 ára dvöl og stóð sig frábærlega í leiðsögumannahlutverkinu.

Það sem stóð aðallega uppúr í ferðinni var þegar við....
  • Fengum blessun páfans í Vatikaninu
  • Öttum bardaga við ljón í Colosseum þar sem við bárum auðvitað sigur af hólmi við mikinn fögnuð viðstaddra.
  • Fengum inngöngu í borg hinna eilífu við Fontana di Trevi
  • Fengum okkur rauðvínsglas á Piazza Navona
  • Skoðuðum fornminjar í  Forum Romano
  • Skoðuðum Pantheon
  • Kíktum í frægasta skráargat Rómar (ef ekki heims) en það má samt ekki segja frá því hvað við sáum, þið verðið bara að kíkja sjálf.
  • Tókum aðeins á Leonardo da Vinci...mollinu þar að segja
  • Versluðum af okkur rassinn á stærsta markaði í Evrópu Porto Portese
  • Fórum í grandma fílinginn og keyptum okkur allar pels
  • Vorum orðnar svo harðar í prúttinu að kallarnir voru á hlaupum á eftir okkur strunsulínum að samþykkja verðið sem við vorum tilbúnar að borga.
  • Tækjum Kína klárlega í nefið
 Við náðum allavega að kaupa ca. 15 kg á mann og það var sko ekki auðvelt að koma þessu öllu saman heim...fötunum var rúllað saman (á að taka minna pláss) og ófá kíló tekin í handfarangur Glottandi 
En þetta var nú ekki allt verslað á okkur heldur var megnið af þessu jólagjafir. 
 

Þessi ferð var frábær í alla staði og við erum heldur betur sáttar. Enda varla annað hægt því við vorum í einu besta yfirlæti sem við höfum kynnst hjá þeim Kristínu og Grím sem gerðu nánast allt fyrir okkur, dekruðu svoleiðis við okkur að við höfum aldrei kynnst öðru eins hehe. Hlæjandi

Sjæse...bara 30 dagar í heimkomu....Hissa

What happens in Nice, stays in Nice.....

11. nóvember 2007 klukkan 22:14

Í tilefni af því að Andri var kominn til Nice, alla leiðina frá Kína, gátum við vinkonurnar ekki verið þekktar fyrir annað en að koma litlu rössunum okkar til Nice og hrista þá aðeins á tjúttinu. 
 Herdís kærastan hans Andra var svo yndisleg að redda okkur gistingu hjá breskum vini sínum og var gistingin sko alls ekki af verri endanum. Eiginlega betri en okkur hefði nokkurn tímann getað dreymt um því vinurinn þessi á heima í penthouse íbúð í miðbæ Nice, með aukaherbergi og king size rúmi og sér baðherbergi. Héldum nú fyrst að þetta væri eitthvað grín en það reyndist ekki vera, gaurinn á bara svona moldríka foreldra sem vildu endilega eyða peningunum sínum í íbúð í Nice. Þá náttúrulega spurðum við að því hvort hann væri myndarlegur og á lausu og viti menn hann var víst myndarlegur og á lausu, þá héldum við að við værum dottnar í lukkupottinn en vinsældir lukkupottarins döluðu mjög snögglega þegar við komumst að því að vinurinn er 18 ára. Við létum þetta samt ekkert á okkur fá og brunuðum af stað. Eins og svo oft áður þá gleymum við stundum að hugsa áður en við framkvæmum og það átti einnig við í þetta skiptið því þegar við vorum að nálgast Nice var komið myrkur og við vissum náttúrulega ekkert hvar þessi dúddi á heima eða hvar Herdís kærastan hans Andra á heima. Þarna kom innbyggða GPS tækið að góðum notum og eftir nokkrar vitlausar beygjur og smá akstur á móti umferð (við mikinn fögnuð farþeganna í bílnum eða allavega öskruðu allir mjög hátt) vorum við komnar heim til ríka bretans með cabrina í hönd og farnar að segja Ísland best í heimi sögur.

Við fórum svo í bæinn hópur af fólki saman og fyrsti barinn var staður þar sem fólk er næstum því skyldugt til að dansa upp á borðum, án gríns og þarna fíluðum við okkur náttúrulega í botnHlæjandiVoða sérstakt eitthvað !!!
Kvöldið fékk hinsvegar snöggan endi því þegar við ætluðum að fara inn á aðra staði fengum við ekki inngöngu því Nicebúar eru greinilega ekkert hrifnir af útlendingum. Við vorum auðvitað sármóðguð því það vita nú allir hvað íslendingar eru skemmtilegir og þér sérstaklega við og ég tala nú ekki um á djamminu Ullandi Viðbrögð okkar voru nokkuð mismunandi og menn gerðu ýmislegt til að láta óánægju sína í ljós við mjög misjafnar undirtektir. Dyravörðurinn á einum staðnum var sérstaklega fyndin (Samt eiginlega ekkert fyndin fyrr en daginn eftir og alls ekki á ákveðnum tímapunkti um kvöldið) en þar vorum við að berjast við að mestu trukkalessu sem ég hef á ævi minni séð og jafnvel ég varð að játa mig sigraða. Samt ekki fyrr en eftir að við Sigrún vorum búnar að stelast inn þegar hún sá ekki til og reyndum svo allt hvað við gátum til að fá hana til að hleypa vinum okkur inn en ekkert gekk, ekki einu sinni "brostu og vertu sæt" svipurinn og þá eru nú öll ráð úti.En við vorum samt tæknilega séð búnar að vinna með því að stelast inn hehe Glottandi  Við létum þetta nú samt ekki skemma annars frábært kvöld og hentumst heim á leið. Duttum í nett tyrkneskan fíling á leiðinni með viðkomu á kebab og sögðum  bretanum nokkra brandara. T.d. " If I had to choose between prins William and Harry I would choose the one less hairier, so if William is less hairier than Harry I would choose him"  Reynið bara að segja þetta upphátt og vera nett í glasi, það er ekkert nema fyndið eða allavega fannst einni af okkur þetta mjög fyndið (nafngreini enga).
 Við sváfum svo eins og nýfæddir kettlingar og kúrðum smá, eða sumir gerðu allavega tilraun til þess (nafngreini enga) milli þess sem við ýttum við einni af okkur sem hraut eins og versti karlmaður (enn á ný nafngreini enga)

Eftir velheppnaða helgi fórum við vinkonurnar aftur til Toulon og villtumst ekkert á leiðinni heim í þetta skiptið.

Andri og Herdís takk fyrir frábæra helgi og að redda gistingunni fyrir okkur, þið eruð algjört æði

Parísarblogg

07. nóvember 2007 klukkan 09:33

Jæja nú kemur loksins blogg frá okkur Hlæjandi

 Eftir skyndiákvörðun á þriðjudegi í síðustu viku skelltum við okkur til Parísar með lest á miðvikudeginum. Tókum okkur að sjálfsögðu dágóðan tíma í að hugsa það vandlega hvort við ættum að eyða í lestarmiða eða keyra til Parísar og þegar við vorum loksins komnar með niðurstöðu var miðinn búinn að hækka um 20 evrur, týpískt við. Um kvöldið hófst svo leit að gistingu sem gekk alls ekki vel, við vorum náttúrulega ekkert að hugsa út í það að hér í Frakklandi var bank holiday þannig að það voru sem sagt töluvert fleiri á leiðinni til Parísar en við en eftir tvær rauðvínsflöskur og 10 símtöl duttum við niður á eitt gistiheimili á frábærum stað. 

Við vorum því hæstánægðar með þessa ákvörðun okkar og þegar til Parísar var komið skelltum við okkur beinustu leið að Eiffelturninum og smelltum af nokkrum vel pósuðum myndum.

Eiffel  Louvre  Sigurboginn
Dvölinni í París var að mestu eytt í að skoða helstu túristastaðina og sjálfsögðu versla og borða inn á milli, bjórinn var reyndar óþarflega dýr þarna en alltaf jafn góður. 
Við skoðuðum m.a. Sigurbogann,þræddum búðirnar á Champs-Elyseé og urðum sífellt hrifnari af borginni.

Við keyptum miða í útsýnisstrætó sem fer á milli allra helstu staðanna í París,svona hop on and hop off miða, mjög sniðugt og við mælum með þessu til að komast yfir allt það helsta á stuttum tíma. Við skoðuðum m.a. Louvre, Notre Dame, Óperuhúsið, Museé D’Orsay, Trocadéro og svo auðvitað Sigurbogann og Eiffelturninn.

Á föstudeginum var svo ferðinni heitið í Quarter Latin hverfið eða Latínuhverfið, tókum rölt þar um og versluðum smá í litlu flottu búðunum sem leynast allstaðar. Við fórum svo í stærstu verslunarmiðstöð Parísar, við vorum reyndar orðnar nett þreyttar og uppgefnar og að vera í þessu stóra “molli” gerði okkur bara enn þreyttari og ákváðum við því bara að drífa okkur út – ótrúlegt en satt Ullandi 
Við veltum því aðeins fyrir okkur hvort við ættum að fara í Eiffel turninn eða borða fyrst en ákváðum að "drífa" þennan Eiffel turn af bara og borða svo. Komumst svo klárlega að því að við höldum stundum að við séum algjörlega einar í heiminum því þessa sömu hugmynd höfðu greinilega svona 100 manns fengið þetta sama kvöld. Eftir hálftíma í röðinni vorum við aðframkomnar af hungri og ætluðum að kaupa eitthvað snarl en að sjálfsögðu var allur peningurinn búinn og enginn hraðbanki nálægt. Silja fann þó nokkrar evrur í veskinu og stökk af stað til að bjarga málunum, kom svo til baka með RISASTÓRAN candy floss !!! Mikil og góð næring í því og við hámuðum í okkur af bestu lyst. Til að drepa tímann í röðinni var bryddað upp á ýmsum skemmtilegum leikjum t.d. kenndum við Silju steinn, skæri, net (blað), fórum í "hver er maðurinn?" þar sem manneskjur á borð við Þóri Pál,Vigdís Finnbogadóttir, maðurinn fyrir aftan okkur í röðinni og fleiri komu við sögu.
Þessir tæplega tveir tímar liðu því ansi hratt enda fjör á okkur og loksins var komið að því að fara upp í turninn. Við vorum reyndar ansi skúffaðar í röðinni því á einu skilti við turninn stóð að það væri bara hægt að fara upp á miðhæðina því efsta hæðin væri eitthvað biluð. En ótrúlegt en satt á sömu mínútu og við vorum að kaupa miðana fékk miðadaman símtal um að það mætti hleypa fólki upp á topp. Sumum til smá skelfingar en öðrum til mikillar gleði. Á leiðinni upp á toppinn var
ekki laust við að smá lofthræðsla gerði vart við sig, allavega var ein af okkur farin að grípa ansi fast í hendina á hinni og var sest í gólfið af hræðslu þegar við nálguðumst toppinn. Útsýnið úr toppnum var stórkostleg og algjörlega biðarinnar og hræðslunnar virði.

Við toppuðum svo þennan góða dag með því að fara og fá okkur að borða enda ekki seinna vænna þar sem klukkan var að nálgast 23 ! Fórum við og fengum okkur “Moules et frites” sem er kræklingur og franskar og var það alveg himneskt! Hlæjandi 

Vorum þarna orðnar rangeygðar af þreytu eftir annríki dagsins og það var ekki laust við að við stöllur værum bara orðnar tipsy eftir fyrsta bjórinn...nokkrum tímum og bjórum seinna röltum við heim á leið og sofnuðum áður en við vorum lagstar á koddann.


Laugardagurinn fór svo í að leita að markaði, leitin varð ansi umfangsmikil þar sem við fórum á vitlausan stað í fyrstu og varð metrokerfið okkar besti vinur þennan síðasta dag í París...eyddum eflaust hálfum deginum í metro-inum og vorum því ansi fegnar þegar markaðurinn var loksins fundinn. Þar gerðum við nú góð kaup og komumst að því að skórnir sem við höfðum keypt deginum áður í búð í miðborg Parísar kostuðu nú ansi minna þarna, þannig að við vorum heldur betur snuðaðar! En við græddum ýmislegt í staðinn og fundum skópör m.a. á 5 evrur parið – nokkuð gott. Svalur 
Eftir þessa ferð lá leiðin á ný að Eiffelturninum til að segja bless og taka nokkrar myndir viðbót.

Við vorum samt mjög fegnar því að vera komnar heim eftir þetta ferðalag og fór sunnudagurinn að mestu í að slappa af...og þvo þvott.  Glottandi

Svo eftir viku erum við að fara til Rómar...frá 15.-20.nóv! Hlæjandi

Knúsar frá okkur :*

Paris here we come

30. október 2007 klukkan 23:04

Við erum farnar til Parísar....

Heimkoma í prinsessuhallargarðinn er seint á laugardagsnótt

Hafið það gott elskurnar :*

Til Benna

29. október 2007 klukkan 21:55

Litli hjartaknúsarinn okkar hann Benedikt átti stórafmæli í gær og hér með sendum við honum rafræna franska kossa beint frá Toulon í Frakklandi

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU HUNANGSBOLLAN OKKAR :*

Kveðjur

Brandur,Tiger og Barbi